Leið­sögn útskrift­ar­nema Ljós­mynda­skólans

Leiðsögn útskriftarnema Ljósmyndaskólans

Verið velkomin á útskriftarsýningu Ljósmyndaskólans. Útskriftarnemendurnir Sigríður Hermannsdóttir og Ingunn Rós Haraldsdóttir munu leiða gesti í gegnum sýninguna.

Á sýningunni eru verk þeirra nemenda sem ljúka diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2024. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, viðfangsefni nemenda mismunandi og framsetning, listræn sýn og fagurfræði ólík. Endurspegla útskriftarverk nemenda þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum. Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir. Viðburðamyndin er eftir Sigríði Hermannsdóttur Sýningin stendur frá 13. desember 2024 til 5.janúar 2025. Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.