Lesið með Lubba á Árbæj­arsafni

Lesið með Lubba á Árbæjarsafni

Það ber sannarlega vel í veiði fyrir aðdáendur íslenska fjárhundsins Lubba því sunnudaginn 31. maí kl. 13.00-16.00 verður haldið útgáfuhóf í tilefni af útgáfu bókanna Lubbi á Árbæjarsafni og Lubbi og Púki prakkari, en það er Forlagið sem gefur bækurnar út. 📖 🐕 kl. 13.00-16.00 – Teiknaðu þinn eigin Lubba! Börn teikna sínar eigin Lubba-myndir úr verkefnabókunum hans Lubba. 🐕 kl. 13.00-16.00 – Skemmtilegur ratleikur með Lubba um safnsvæðið fyrir unga sem aldna. 🐕 kl. 14.00 – Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir, höfundar bókanna, lesa upp fyrir áheyrendur og árita. Kassabílarnir og fleiri útileikföng verða á staðnum fyrir börnin og svo auðvitað hin sívinsæla sýning í Landakotshúsinu „Komdu að leika!“ Landnámshænurnar vappa líka frjálsar um safnsvæðið. Ókeypis aðgangur fyrir fullorðna í fylgd með börnum.

♿ Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.