Lífið í sveit­inni

Lífið í sveitinni

Verið velkomin á Árbæjarsafn sunnudagana 15. júní og 27. júlí kl. 13–16. Þar gefst einstakt tækifæri til að kynnast sveitalífi fyrri tíma í lifandi umhverfi.

Gestir fá að kynnast fjölbreyttum störfum og daglegu lífi í gamla sveitasamfélaginu. Guðsþjónusta verður í litlu safnkirkjunni kl. 14. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari. Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi. Öll velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.