Lífið í þorpinu

Lífið í þorpinu

Verið velkomin á Árbæjarsafn sunnudagana 28. júní og 10. ágúst kl. 13–16. Þá vaknar þorpið til lífsins á safninu og gestir fá að kynnast fjölbreyttum störfum og daglegu lífi í þorpum fyrri tíma.

Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi. Öll velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.