Litasmiðja á Menningarnótt - RRS Sir David Attenborough

Í tilefni af heimsókn konunglega rannsóknarskipsins Sir David Attenborough á Menningarnótt, verður opin litasmiðja þann 22. ágúst kl. 10:00-20:00. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Móttaka skipsins er unnin í samstarfi við Bresku heimskautarannsóknastofnunina (British Antarctic Survey) og Breska sendiráðið. Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott á Sjóminjasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.