Lýstu upp skammdegið! Kertaluktasmiðja í haustfríi.

Árbæjarsafn býður fjölskyldum að eiga notalega stund saman og föndra sína eigin kertalukt í haustfríinu. Smiðjan fer fram 23. október kl. 10:00-12:00. Ókeypis inn og öll velkomin en skráning er nauðsynleg🕯️ Í smiðjunni gefum við gömlum krukkum nýtt líf með því að endurnýta þær og skreyta með fallegum sumarblómum sem við höfum þurrkað. Þannig kveðjum við sumarið á skapandi hátt og búum til fallega kertalukt sem lýsir upp haustið. ‼️Skráning er nauðsynleg, þar sem við eigum aðeins takmarkað magn af krukkum. Miðað er við eina krukku á hvert barn á grunnskólaaldri. Skráning í gegnum netfang safnfræðslu: 👉 hopar.borgarsogusafn@reykjavik.is Við hlökkum til að taka á móti ykkur í hlýlegri og skemmtilegri smiðju þar sem sköpunargleði, samvera og endurnýting fara saman. 🍂Viðburðurinn er hluti af haustfrísdagskrá Borgarsögusafns. Frítt er inn á alla sýningarstaði safnsins fyrir fullorðna í fylgd barna dagana 22.-26. október.
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.