Málþing - Hverfandi landslag: Jöklar, öryggi og sjónræn arfleifð

Í tilefni af alþjóðlegum degi jökla, efnir Ljósmyndasafn Reykjavíkur til örmálþings í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands þann 21. mars kl. 14. Frítt inn og öll velkomin!
DAGSKRÁ Stjórnandi: Andri Snær Magnason, rithöfundur Jöklarannsóknir á Íslandi í víðara samhengi (10 mín.) Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jarðeðlisfræði, Háskóla Íslands. Háskóli Íslands og Veðurstofan taka þátt í evrópska verkefninu ICELINK 2025-2029. Fjöldi rannsóknaverkefna á Íslandi verða gerð á tímabilinu í samvinnu við 9 aðrar stofnanir. Jökulhlaup á Íslandi – framgangshraði, stærð og áhrif (10 mín.) Bergur Einarsson, vatna- og jöklafræðingur Um jökulhlaup frá Mýrdalsjökli: hvað við vitum um tíðni og umfang þeirra. Öryggi á jöklum – sprungukort og leiðbeiningar (10 mín.) Einar Daníelsson, verkefnastjóri slysavarna, Slysavarnarfélagið Landsbjörg. Kynning á sprungukorti og vefnum Safetravel sem nýtast til að tryggja öruggar jöklaferðir. Jöklaferðir í breyttu loftslagi (10 mín.) Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur í öryggismálum, Ferðamálastofa. Rýrnun jökla og aukin áhætta í ferðaþjónustu – hvaða áskoranir og aðlögun bíða okkar? Sýndarveruleiki og jöklar – Into the Blue (10 mín.) Ásta Olga Magnúsdóttir, vísindamiðlari. Sýndarveruleiki sem fræðslutæki og nýjar leiðir til að upplifa breytingar jökla. Ljósmyndasýningin Sofandi risar (10 mín.) Kristján Maack, ljósmyndari. Ljósmyndir af jöklum á norðurhveli jarðar sem sýna þá sem loftvogir hlýnunar og minna á að loftslagsbreytingar taka sér enga hvíld. Pallborð og spurningar úr sal Stutt samtal við fyrirlesara undir stjórn Andra Snæs Magnasonar og opið fyrir spurningar gesta. Viðburðinum lýkur kl. 15.30. Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.