Menningarnótt á Borgarsögusafni Reykjavíkur

Það verður menningarlegt að vanda á Borgarsögusafni á Menningarnótt þar sem fólk á öllum aldri getur fengið að kynnast og njóta þeirrar sögu sem samfélag okkar byggir á. Fjölbreyttir viðburðir fara fram á Landnámssýningunni Aðalstræti 10 og 16, á Ljósmyndasafni Reykjavíkur og á Sjóminjasafninu í Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Dagskrá: Aðalstræti 10 og 16 – Opið kl. 10-21 10-21 Frítt inn í Aðalstræti 10 og 16 10-15 Víkingaþorpssmiðja 16-21 Búningahorn litlu víkinganna 16-21 Aðalstræti 10 lifnar við 17-21 Gamanmyndasýning í Reykjavíkur Biograph-Theater Ljósmyndasafn Reykjavíkur – Opið kl. 13-21 13-21 Frítt inn á Ljósmyndasafn Reykjavíkur 13-21 Hjartasmiðja 13:30 & 15:30 Sýningarspjall með Þórdísi Erlu Ágústsdóttir 16-21 Fókus á Menningarnótt 18-19 Jazz með Rebekku Blöndal Sjóminjasafnið í Reykjavík – Opið kl. 10-20 10-20 Frítt inn á Sjóminjasafnið í Reykjavík 10-20 Litasmiðja 10-20 Pop-up sýning - Konunglega rannsóknarskipið RRS Sir David Attenborough 13-16 Spjallið við áhöfn og vísindamenn RRS Sir David Attenborough 14-14:30 Vísindaspjall á ensku: „Sendum inn vélmennin! Innsýn í rannsókn á ísilögðum fjörðum Grænlands“ – Dr. Oliver Marsh Verið velkomin á Borgarsögusafn á Menningarnótt!