Örnám­skeið í hafra­grautar­fræðum með Björk Bjarna­dóttur

Örnámskeið í hafragrautarfræðum með Björk Bjarnadóttur

Verið velkomin á örnámskeið í hafragrautarfræðum á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16. Björk Bjarnadóttir, umhverfis-þjóðfræðingur og fyrrverandi keppandi í Heimsmeistarakeppni í hafragrautargerð í Skotlandi (The Golden Spurtle, World Porridge Making Championship) leiðir námskeiðið í samstarfi við Borgarsögusafn sunnudaginn 20. september kl. 13-15. -- Námskeiðið kostar 3.100 krónur á mann, greitt á staðnum og skráning er nauðsynleg. Skráningin fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled --

Á örnámskeiðinu mun Björk rekja sögu hafranna, hvernig hafrar hafa ratað inn í þjóðsögurnar okkar og einnig verður sagt frá nytjum af plöntunni bæði sem hráefni í mat, sem og til jurtalækninga. Síðan mun Björk útbúa einfaldan hafragraut, spari hafragraut og bygggraut sem þátttakendum býðst að smakka. Allir fá heim með sér uppskriftir. Athugið að notaðir verða glútenlausir hafrar og að á boðstólum verður haframjólk fyrir þá sem kjósa hana framyfir kúamjólk. Vinsamlegast látið vita af ofnæmi við skráningu á námskeiðið. Aldur þátttakenda miðast við fimm ára og upp úr. Öll börn verða að vera í fylgd með forráðamanni. Viðburðurinn er hluti af Menningarminjadögum Evrópu 2026. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).