Örnám­skeið í rabarbara­fræðum - Skráning nauð­synleg

Örnámskeið í rabarbarafræðum - Skráning nauðsynleg

Laugardaginn þann 6. júní kl 13:00 til 16:00 munu Árbæjarsafn og Björk Bjarnadóttir, þjóðfræðingur bjóða upp á fræðslu og verklega kennslu í flestu því sem kemur að því að búa til rabarbaragarð, hugsa um garðinn, taka upp rabarbara sem og útbúa rabarbarasultu. Einnig munu þátttakendur fræðast um ræktunarsögu rabarbarans, lækningarmátt hans og sögur tengdar honum. Athugið að skráning er nauðsynleg. Við biðjum þátttakendur vinsamlegast um að skrá sig hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled Námskeiðið kostar 3.100 kr. Greitt er á staðnum.

Þátttakendur þurfa að taka eftirfarandi með sér: Hníf til að saxa rabarbarann með, skurðarbretti til að saxa hann á, nesti, og ykkar eigin svuntu. Aldur þátttakenda miðast við fimm ára og upp úr. Börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Björk Bjarnadóttir umhverfis-þjóðfræðingur og sagnaþula plantnanna mun leiða þátttakendur um hina fimm rabarbaragarða Árbæjarsafns, sem eru hver öðrum fallegri. Þátttakendur fá verklega kennslu í því að taka upp rabarbara, en handverkið að taka upp rabarbara á réttan hátt hefur verið að glatast. Allir fá að smakka rabarbara með því að dýfa honum ofan í sykur en það þekkja margir að hafa gert eftir að hafa nælt sér í einn rabarbaralegg bak við hús hjá einhverjum á fögrum sumardegi. Við söxum rabarbarann og þátttakendur fá að taka með sér heim: nýupptekin rabarbara, rabarbaraperur, rabarbarasultu og uppskriftir af sultu, rabarbaraperum og dásamlegri rabarbaraköku. Á meðan rabarbarasultan er að malla á hellunni mun Björk fræða þátttakendur um lækningarmátt og sögu rabarbarans sem og fleira tengt honum. Verið velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.