Opið varð­veisluhús á Kopar­sléttu! - Leið­sögn *Skráning nauð­syn­leg*

Opið varðveisluhús á Koparsléttu! - Leiðsögn *Skráning nauðsynleg*

Sunnudaginn 27. september kl. 13:00-14:00 gefst tækifæri til að fara í skoðunarferð um varðveisluhús Borgarsögusafns á Koparsléttu 11 í fylgd með sérfræðingum safnsins. Ókeypis inn og öll velkomin, en skráning er nauðsynleg. -- Skráning fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled --

Borgarsögusafn varðveitir um 35 þúsund lausa muni auk báta og safnhúsa í Árbæjarsafni, sem og um 5 milljónir ljósmynda. Það sem í daglegu tali eru kallaðar geymslur, köllum við varðveisluhúsnæði, því þar fer fram vinna allt árið um kring. Safnið hefur yfir að ráða nokkrum svona húsum sem öll gegna mismunandi hlutverkum og hýsa mismunandi gerð hluta; allt frá skrúfjárnum, leikföngum og textíl, yfir í stærðarinnar verksmiðjuvélar og slökkviliðsbíla. Það eru einmitt þeir gripir – þessir stóru- sem við varðveitum í nýjasta varðveisluhúsnæðinu okkar á Koparsléttunni. Safnið tók við því snemma sumars árið 2023. Enn er heilmikil vinna eftir við að skrá, þrífa, endurpakka, ljósmynda og rannsaka allt það sem þar er að finna, en það er einmitt það sem starfið innan varðveisluhúsnæðis á safni snýst um – allt árið um kring! Viðburðurinn er haldinn í tilefni af Menningarminjadögum Evrópu. Aðgengi er gott í varðveisluhúsinu og bílastæði eru við húsið.