Opnum varðveisluhúsin! - Skráning nauðsynleg

Sunnudaginn 9. ágúst kl. 13 og 14:30 gefst tækifæri til að fara í skoðunarferð um varðveisluhúsin á Árbæjarsafni í fylgd með sérfræðingum safnsins. Skráning er nauðsynleg og fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled. Aðgangseyrir að safninu er greiddur á staðnum.
Á lóð Árbæjarsafns eru þrjú eiginleg varðveisluhús, hús sem eru heimili safnkosts af ýmsu tagi. Í Skemmu 1 eru varðveittir smærri hlutir sem tengjast heimilishaldi og ýmsum starfsgreinum. Í Skemmu 2 eru sjóminjar varðveittar, allt nema bátar og í Vörðunni, sérhönnuðu varðveisluhúsi, eru varðveittir helstu kjörgripir safnsins, útskurður, málverk og textílar. Í varðveislurýmum er safngripum búið öruggt skjól. Þar er einnig aðstaða til að sinna grunnatriðum safnastarfsins, skráningu, ljósmyndun og forvörslu. Verið velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis.