Opnun I Abstrakt

Verið velkomin á opnun sýningarinnar „Abstrakt“ í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 5. júní kl. 16-18. Veitingar í boði. „Abstrakt“ nefnist fjórða sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Það má vera að einhverjir spyrji, hvað er nú þetta? Er þetta ljósmyndun? Já, svo sannarlega. Þetta kallast óhlutbundin ljósmyndun (abstract photography) sem leggur áherslu á form, liti, áferð og mynstur frekar en raunsæjar myndir, og breytir hversdagslegum hlutum í list. Helstu hugmyndir eru meðal annars að fanga stórar áferðir svo sem börk og ryð, hreyfa myndavél vísvitandi fyrir óskýrar myndir, fá málningarleg áhrif, fanga speglun í vatnsfleti, nota langan lýsingartíma fyrir ljós og margt fleira. Sýnendur eru: • Bára Snæfeld Jóhannsdóttir • Gissur Orri Steinarsson • Halla Björg Baldursdóttir • Hrannar Örn Hauksson • Kristján U. Kristjánsson • Tryggvi Már Gunnarsson • Valentina H Michelsen Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur. Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸 📸 Valentina H. Michelsen
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Gjaldskyld bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.