Opnun I Götu­myndir

Opnun I Götumyndir

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Götumyndir í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 24. júlí kl. 16-18. Veitingar í boði. Götumyndir nefnist fimmta sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. „Vegir liggja til allra átta, á þeim verða skil;… ” Þetta textabrot, úr ljóði Indriða G. Þorsteinssonar, gæti átt við götuljósmyndun. Um er að ræða vítt hugtak sem oft fangar hversdaglega atburði og athafnir í daglegu lífi ókunnugs fólks. Faðir götuljósmyndunar, Henri Cartier-Bresson, lýsti henni þannig í viðtali: „Það er þetta skapandi brot úr sekúndu þegar þú tekur mynd. Augu þín sjá samsetningu eða tjáningu sem lífið býður upp á og þú verður að vita með innsæi hvenær á að smella af á myndavélinni. Það er augnablikið þegar ljósmyndarinn er skapandi.” Sýnendur eru: • Einar Valur Einarsson • Einar Örn Jónsson • Ingunn Mjöll Sigurðardóttir • Jón Bjarnason • Stefán Hrafn Jónsson • Þóroddur Steinn Skaptason Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur. Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸 📸 Jón Bjarnason, Götumyndir, 2026

♿ Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Gjaldskyld bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.