Opnun I MYNDIR ÁRSINS 2025

Opnun I MYNDIR ÁRSINS 2025

Blaðaljósmyndarafélag Íslands og Ljósmyndasafn Reykjavíkur bjóða þér að vera við opnun sýningar sem og afhendingu verðlauna fyrir myndir ársins 2025 laugardaginn 11. apríl kl. 15:00 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, opnar sýninguna og veitir verðlaun. Léttar veitingar í boði. 📷Mynd ársins 2024. Ljósmyndari Golli (Kjartan Þorbjörnsson)

Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.