Opnun I Vatn

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Vatn í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 6. nóvember kl. 16-18. Veitingar í boði. Vatn nefnist sjöunda sýning félaga úr Fókus félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Sýningin er jafnframt lokasýning ársins á vegum Fókus. Á Vísindavef Háskóla Íslands er að finna eftirfarandi skýringu á því hvað er vatn: „Vatnið er í samfelldri hringrás: það gufar upp úr sjónum á suðlægari breiddargráðum, berst inn yfir landið þar sem það þéttist og fellur til jarðar, streymir aftur til sjávar í vatnsföllum eða berst niður í berggrunninn sem grunnvatn - og þaðan til sjávar aftur með tímanum.” Á þessari sýningu sjáum við ljósmyndara fanga ýmiss konar birtingarmyndir vatnsins bæði í föstu og fljótandi formi. Þar sem það lemur ströndina, flæðir til hafs eða er í föstu formi og bíður geisla sólar til að leysa sig úr fjötrum. Sýnendur eru: ● Arngrímur Blöndahl ● Brynja Jóhannsdóttir ● Finnur P Fróðason ● Jóhann Guðni Reynisson ● Jóhanna Ingimundardóttir ● Lárus St. Guðmundsson ● Sigríður Jóna Kjartansdóttir
Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur. Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸 ♿ Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Gjaldskyld bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum 📸 Arngrímur Blöndahl, Tungnaá, 2026