Opnun I Vetrarmyndir

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Vetrarmyndir í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 17. apríl kl. 16-18. Léttar veitingar verða á boðstólum. Ókeypis inn! „Vetrarmyndir“ nefnist þriðja sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Það fór lítið fyrir snjó á Íslandi fyrstu mánuði ársins. Það breyttist hins vegar þegar líða tók á marsmánuð, snjóflóð að falla og samgöngur fóru víða um landið úr skorðum. Snjónum fylgir þó líka margs konar fegurð og ekki síður í frostinu, sem gleður ljósmyndara. Það fáum við að sjá í þessari sýningu þar sem snjórinn breiðir sína fögru slæðu yfir landið, býr til ýmsar kynjamyndir og með frostinu birtast alls konar furðuverur og form næst vötnum og ám. Sýnendur eru: • Hallfríður Ingimundardóttir • Helga Gréta Ingimundardóttir • Hrafnhildur L. Hafsteinsdóttir • Íris Reynisdóttir • Jón Stefánsson • Þórður Kr Jóhannesson
Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur. Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸 Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).