Opnun | Kristján Maack - Sofandi risar

Opnun | Kristján Maack - Sofandi risar

Verið velkomin á opnun sýningar Kristjáns Maack, Sofandi risar, laugardaginn þann 17. janúar kl. 15-17. Ókeypis inn og öll velkomin! Léttar veitingar. Borgarstjórinn í Reykjavík, Heiða Björg Hilmisdóttir, býður forseta Íslands og gesti velkomna. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, opnar sýninguna. Kynnir er Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur. Sofandi risar fjalla um hina örlagaríku tíma sem við lifum á. Í náttúrunni búa sofandi risar sem smátt og smátt eru að vakna til lífsins. Djúpt í iðrum náttúrunnar stendur tíminn kyrr svo árþúsundum saman og varðveitir þar tímann og kjarnann í náttúrunni. Um þúsaldir geymist vatnið og súrefnið og allar öreindir landsins á hinum fullkomna stað, undir þungu fargi sjálfs síns til þess að varðveita upprunann. Í myrkrinu og kuldanum varðveitist kjarninn best, tíminn hefur stöðvast í milljónir ára og bíður þess sem verða vill. Massinn og fargið hefur áhrif á allt í kringum sig, nærir og kæfir allt umhverfið sitt með eiginleikum sínum. Íslenskir jöklar eru að hverfa. Ef skyggnst er innst inn í kjarna jökuls þá má þar finna allt sem var, andrúmsloft, vatn, ryk, flóru, og allar hinar minnstu öreindir alheimsins. Þetta er allt geymt í frystigeymslu náttúrunnar.

Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.