Opnun | Landslag

Verið velkomin á opnun sýningarinnar „Landslag“ í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 27. febrúar kl. 16-18. Léttar veitingar verða á boðstólum. Ókeypis inn! „Landslag“ nefnist önnur sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Við Íslendingar búum svo vel að eiga einstaklega fallegt land þar sem fjölbreytt landslag ber fyrir augu. Bæði í öllum sínum hrikaleika, fegurð næturmyrkursins og hinum fíngerðu og einföldu formum. Ljósmyndarar í þessu þema fanga hér nokkur tilbrigði. Sýnendur eru: • Guðjón Ottó Bjarnason • Gunnlaugur Júlíusson • Ingibjörg Óskarsdóttir • María Lóa Friðjónsdóttir • Óli Elvar Einarsson • Páll Þórir Daníelsson • Þorkell Sigvaldason Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 46 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur. Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).