Opnun: Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans

Verið velkomin á opnun sýningar með útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans föstudaginn 12. desember kl. 16 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Á sýningunni eru verk þeirra nemenda sem ljúka diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2025. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, viðfangsefni nemenda mismunandi og framsetning, listræn sýn og fagurfræði ólík. Endurspegla útskriftarverk nemenda þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum. Útskriftarnemendur: Elva Þrastardóttir, Gunnar Ragnarsson, Lilja Birna Arnórsdóttir, Íris Hadda Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir Viðburðamyndin er hluti af útskriftarverki Írisar Höddu. Sýningin stendur frá 12. desember 2025 til 11. janúar 2026.
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).