Pólsk leið­sögn í Viðey

Pólsk leiðsögn í Viðey

Hefur þú komið í Viðey? Sunnudaginn 16. ágúst kl. 13:00-15:30 verður leiðsögn á pólsku í Viðey. Marta Wieczorek, aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um leiðsögnina. Viðey er frábær staður til að njóta útiveru í einstöku umhverfi. Þar er mikil saga, fjörur og útilistaverk.

Viðey er eyja og til að komast þangað þarf að sigla með ferju. Þátttaka í leiðsögninni er ókeypis en kaupa þarf miða í ferjuna. Ferjan siglir frá Skarfabakka sunnudaginn 16. ágúst kl. 13:15 og til baka kl. 15:30 en þið getið verið lengur ef þið viljið. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar: https://elding.is/videy-ferry-skarfabakki Aðgengi: Til að komast í ferjuna er gengið um landgang sem er misbrattur eftir sjávarföllum. Göngustígar í Viðey eru ýmist malarstígar eða slóðar í graslendi. Hjálparhundar eru velkomnir. Strætisvagnar: Um helgar er næsta stoppistöð LHÍ Laugarnesi (16 mín. gangur frá ferju). Verið öll velkomin!