Ratleikur með rúnum í vetr­ar­fríinu

Ratleikur með rúnum í vetrarfríinu

Verið velkomin í ratleik með rúnum á Landnámssýningunni Aðalstræti í vetrarfríinu, 19.-22. febrúar kl. 10-17. Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum allt vetrarfríið! Í kringum rúst af eldgömlum skála á Landnámssýningunni er fullt af rúnum. Með svona rúnum skrifaði fólk á víkingaöld. En getur þú fundið allar þessar rúnir, og komst að því hvað þær þýða?

Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.