Reykjavíkurborg 240 ára: Birting menningar

Framhaldsnemar í Háskóla Íslands standa fyrir ráðstefnu í tilefni af 240 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Nemendur flytja fyrirlestra sem tengjast birtingu menningar í Reykjavík á einhvern hátt, en þar er sannarlega af nægu að taka.
• Gerum það sjálf! Listamannarekin sýningarrými í Reykjavík - Þórhallur Guðmundsson • Gamlar ljósmyndir á Facebook - Ásdís Magnea Egilsdóttir • Sjoppur - dauði og endurfæðing - Hildur Sigurbergsdóttir • Gamaldags góðgæti - Guðríður Eldey Arnardóttir • Sundlaugin sem menningarlegt og félagslegt rými - Þórunn Lilja Arnórsdóttir • Reykvískt bíó, aldarminning: Um áhrif kvikmynda á borgarlíf - Þór Martinsson Hlé • Tónleikahald í Reykjavík: Frá samkomuhúsum til stórviðburða - Nanna Guðrún Sigurðardóttir • Hverra manna ert þú? - Stefnumótamenning - Sunna Sigurveig Thorarensen • Þróun matvöruverslunar í Reykjavík - Baldvin Már Baldvinsson • Textíll og myndlist - Alda Ægisdóttir • Úr baðstofu í Borgarleikhús - Stefanía Ragnarsdóttir Í kjölfar fyrirlestranna verður svo boðið upp á umræðutíma þar sem áhorfendum gefst tækifæri til að spyrja fyrirlesara út í umfjöllunarefni þeirra. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar!