Safnupplifun á Árbæjarsafni: Sumarnámskeið - Skráning nauðsynleg

Dagana 15., 16., 18. og 19. júní kl. 9-12 fer fram fjögurra daga sumarnámskeið á Árbæjarsafni fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára. Námskeiðið kostar 12.000 kr. Skráning er nauðsynleg og fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled
Á námskeiðinu gefst börnum kostur á að fara í skapandi leiðangur um menningu, arfleifð og sögu á Árbæjarsafni. Þau munu dvelja inni og úti í öruggu rými útisafnsins þar sem þau munu uppgötva hluti og velja sér sem innblástur fyrir myndræna tjáningu í gegnum handverk eins og bláprent og ull. Lagt er upp með samveru í hæglæti þar sem börnin fá sín notið jafnt á eigin forsendum sem og saman í hóp. Í lok námskeiðsins verður sýning á afrakstrinum fyrir vini og fjölskyldu. Aðsetur: Safnhúsið Líkn á Árbæjarsafni Námskeiðið er dagana 15., 16., 18. og 19. júní og kennt milli kl. 09:00 og kl. 12:00. Athugið að námskeiðið er ekki kennt 17. júní. Aldur: 9-12 ára (2014 – 2017) Gjald: 12.000 kr., greitt á staðnum Námskeiðinu er stýrt af fagfólki í listkennslu og sagnfræði.