Saumum saman Ísland - Sýning á Sumardaginn fyrsta

Verið velkomin á fyrstu sýningu á saumaverkefninu „Saumum saman Ísland“ á Sumardaginn fyrsta, 23. apríl á Árbæjarsafni. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin!
Sameiginlega bútasaumsteppið sem verður til sýnis hefur verið saumað saman á bókasöfnum víðsvegar um borgina af yfir 60 íbúum í Reykjavík, í smiðjum undir leiðsögn listakonunnar Christalena Hughmanick. Þessi sýning markar hálfleik í vinnslu verksins, en fullklárað teppið verður sýnt haustið 2026. Við munum fagna bæði Sumardeginum fyrsta og þeim mannlegu tengslum sem hafa myndast í gegnum þetta sameiginlega handverk, en þátttakendur í verkefninu verða viðstaddir. Verkefnið leiðir saman fjölda almennings, sem og hinar ýmsu stofnanir og félagasamtök til að skapa vettvang fyrir samtöl um þær breytingar sem fólk vill sjá í umhverfi sínu. Í gegnum þetta samstarf verður bútasaumur bæði efnisleg listiðkun og félagslegt ferli. Verkefnið hlaut styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Fylgið Christalenu á https://www.instagram.com/christalena_hughmanick/ til að fá upplýsingar um komandi viðburði!