Saumum saman Ísland

Verið velkomin á Sjóminjasafnið í Reykjavík dagana 10.-12. apríl kl. 10-17. Þar býðst að taka þátt í að sauma saman samfélagslegt bútasaumsteppi með listakonunni Christalena Hughmanick og Íslenska bútasaumsfélaginu.
Undanfarna mánuði hafa íbúar Reykjavíkur saumað búta eftir eigin hönnun á vinnustofum í bókasöfnum víðsvegar um borgina úr endurnýttum rúmteppum. Á meðan við saumum saman búta af efni, spinnum við einnig samtöl og sögur um nærliggjandi hverfi okkar. Hvernig líður okkur? Hvaða breytingar viljum við sjá í umhverfi okkar? Þessi þriggja daga viðburður er hannaður í anda hefðbundinna „quilting bee“ samkoma, þar sem margir koma saman til að vinna að handverksverkefni hratt í félagslegu umhverfi. Þann 10.-12. apríl verða bútarnir saumaðir saman í stórt teppi sem verður sýnt á Sumardeginum fyrsta, 23. apríl, á Árbæjarsafni. Almenningur er velkominn að koma og fræðast um bútasaumsaðferðina og hitta fólk sem hefur lagt sitt af mörkum — einn saum í einu. Boðið verður upp á kaffi, te og kökur. Verkefnið er styrkt af Þróunarsjóði innflytjendamála.