Siglum um hafið bláa! Bátasmiðja

Siglum um hafið bláa! Á Landnámssýningunni í Aðalstræti leggjum við úr höfn með sköpunarkraftinn að leiðarljósi. Í bátasmiðjunni geturðu hannað og smíðað þinn eigin draumabát, hvort sem hann er lítill eða stór, litríkur eða algerlega óhefðbundinn. Komdu og taktu þátt í sjóferð þar sem ímyndunaraflið ræður för! ⛵✨ 🍂 Viðburðurinn er hluti af haustfrísdagskrá Borgarsögusafns. Frítt er inn á alla sýningarstaði safnsins fyrir fullorðna í fylgd barna dagana 22.-26. október
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið samt að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppustöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).