Sjómannadagurinn 2025

Í tilefni Sjómannadagsins og 20 ára afmæli safnsins býður Sjóminjasafnið í Reykjavík ókeypis aðgang á sýningar safnsins og í varðskipið Óðin. Slysavarnarfélagið Landsbjörg verður með kaffisölu í Bryggjusal Sjóminjasafnsins til styrktar sínu mikilvæga starfi og það með harmonikkuundirleik. Verið hjartanlega velkomin!
Fögnum sjómannadeginum og 20 ára afmæli Sjóminjasafnsins! Komdu í opið hús sunnudaginn 1. júní kl. 10:00-17:00. >Frítt inn á allar sýningar og um borð í varðskipið Óðin >Lifandi harmonikkutónlist í Bryggjusal >Kaffisala til styrktar Landsbjörg Ný sýning: Glöggt er gests augað – um leiðangra franska náttúrufræðingsins Paul Gaimard til Íslands á 19. öld. Kynntu þér líka grunnsýninguna Fiskur & fólk – Sjósókn í 150 ár og njóttu dags við höfnina með fjölskyldu og vinum. Öll hjartanlega velkomin! Tímasett dagskrá: Kl. 11:00-17:00 // Reykjavíkurdeild Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður með ljúffengar veitingar til sölu í Bryggjusal safnsins til styrktar þeirra mikilvæga starfi. Kl. 13:00-16:00 // Varðskipið Óðinn – Allir upp á dekk! Hægt verður að stíga um borð í Varðskipið Óðin. Kl. 13:00-15:00 // Taktföst harmonikkutónlist fyllir Bryggjusalinn - Tilvalið tækifæri til að hlýða á sjómannalögin og jafnvel stíga sjómannavals. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða. Strætó, leið 3 og 14, stoppa nálægt inngangi safnsins, Grandagarðsmegin.