Sjómannadag­urinn á Sjóminja­safninu

Sjómannadagurinn á Sjóminjasafninu

Verið velkomin á Sjóminjasafnið í Reykjavík á Sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní kl. 10-17! Öll hjartanlega velkomin - Frítt inn á safnið!

10:00-17:00 Finndu sjávardýrin! QR-kóðaleikur fyrir káta krakka 11:00-17:00 Reykjavíkurdeild Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður með ljúffengar veitingar til sölu í Bryggjusal safnsins til styrktar þeirra mikilvæga starfi. 13:00-15:00 Taktföst harmonikkutónlist fyllir Bryggjusalinn - Tilvalið tækifæri til að hlýða á sjómannalögin og jafnvel stíga sjómannavals 13:00-16:00 Varðskipið Óðinn – Allir upp á dekk! Hægt verður að stíga um borð. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða.