Skákmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur
![Skákmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fhvirfill.reykjavik.is%2Fmedia%2Fimages%2F449032587_921841.8dc975e3.fill-1920x980-c100.format-jpeg.jpg&w=3840&q=75)
Skákmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 1. september og hefst kl. 14. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns.
Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform sem kemur síðar. Öll velkomin!