Skip, skálar og skegg - Víkinga­smiðja í vetr­ar­fríinu

Skip, skálar og skegg - Víkingasmiðja í vetrarfríinu

Verið velkomin í víkingasmiðju á Landnámssýningunni Aðalstræti í vetrarfríinu, 19.-22. febrúar kl. 10-17. Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum allt vetrarfríið! Á Landnámssýningunni verður aldeilis hægt að finna sinn innri víking, búa sér til flott víkingaskip, fallegan víkingaskála og meira að segja hörkuflott víkingaskegg sem maður getur sett á sig!

Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.