Sofandi risar - Leið­sögn með Kristjáni Maack á Safn­anótt

Sofandi risar - Leiðsögn með Kristjáni Maack á Safnanótt

Verið velkomin í leiðsögn um sýninguna Sofandi risar með Kristjáni Maack á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Leiðsögnin fer fram á Safnanótt, föstudaginn 6. febrúar kl. 18:30. Ókeypis inn og öll velkomin! Sofandi risar fjalla um hina örlagaríku tíma sem við lifum á. Í náttúrunni búa sofandi risar sem smátt og smátt eru að vakna til lífsins. Djúpt í iðrum náttúrunnar stendur tíminn kyrr svo árþúsundum saman og varðveitir þar tímann og kjarnann í náttúrunni. Um þúsaldir geymist vatnið og súrefnið og allar öreindir landsins á hinum fullkomna stað, undir þungu fargi sjálfs síns til þess að varðveita upprunann. Í myrkrinu og kuldanum varðveitist kjarninn best, tíminn hefur stöðvast í milljónir ára og bíður þess sem verða vill. Massinn og fargið hefur áhrif á allt í kringum sig, nærir og kæfir allt umhverfið sitt með eiginleikum sínum. Íslenskir jöklar eru að hverfa. Ef skyggnst er innst inn í kjarna jökuls þá má þar finna allt sem var, andrúmsloft, vatn, ryk, flóru, og allar hinar minnstu öreindir alheimsins. Þetta er allt geymt í frystigeymslu náttúrunnar. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Borgarsögusafns á Safnanótt.

Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.