Spunagaldur á Safnanótt
Verið hjartanlega velkomin á Spunagaldur á Safnanótt, föstudaginn þann 7. febrúar kl. 20. Ókeypis inn og öll velkomin.
Á landnámsöld var fátt eins brýnt og að kunna að spinna á snældu. Án þeirrar þekkingar hefði Ísland aldrei fundist því allur textíll var ofinn úr ullarþræði, jafnt hin miklu segl víkingaskipanna sem föt, ábreiður og bleiur á börnin. Á Safnanótt kenna Marianne Guckelsberger spunakona og Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur gestum Landnámssýningar að spinna á snældu og segja frá konum í fornum sögum sem frömdu spunagaldur til að fela menn á flótta og fá aðra til að missa minnið. Ull, snældur og snúðar á staðnum fyrir gesti sem vilja teygja lopann og spinna þráð. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar stoppa við Ráðhúsið (2 mín. gangur) og í Lækjargötu (5 mín. gangur).