Stolt siglir fleyið mitt - Regnbogasmiðja á Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks

Verið velkomin á opna regnbogasmiðju á Sjóminjasafninu 16.-17. maí kl. 10-17 í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks og Alþjóðlega safnadeginum. Ókeypis inn og öll velkomin!
Á staðnum verður pappír í öllum regnbogans litum sem hægt verður að föndra fána úr eða skrifa skilaboð á og hengja á skipið RE Stolt sem mun standa í Bryggjusal safnsins. Borgarsögusafn Reykjavíkur hlaut regnbogavottun árið 2022. https://reykjavik.is/regnbogavottun-reykjavikur Aðgengi er gott á Sjóminjasafninu. Safnið er á tveimur hæðum og það er lyfta er á milli hæða. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagn, leið 14, stoppar nálægt safninu. Ókeypis bílastæði.