Stórmót Árbæj­arsafns og Tafl­fé­lags Reykja­víkur

Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur

Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 31. ágúst. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Þátttökugjald er greitt með því að greiða aðgangseyri inn á safnið. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortshafa Reykjavíkurborgar, öryrkja og börn 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er greitt við inngang safnsins. Núverandi Árbæjarsafnsmeistari er Arnar Erwin Gunnarsson. Mótið er eitt af fjölmörgum sem T.R heldur í samstarfi við Reykjavíkurborg, en Viðeyjarmótið og Árbæjarsafnsmótið eru haldin í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform hér: http://bit.ly/3Ihzpgw Öll velkomin!