Sumar­dag­urinn fyrsti á Árbæj­arsafni

Sumardagurinn fyrsti á Árbæjarsafni

Fimmtudaginn 23. apríl fögnum við sumardeginum fyrsta á Árbæjarsafni með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir börn og fjölskyldur kl. 13:00–16:00. Ókeypis aðgangur og öll velkomin!

- 12:30 Skrúðganga leggur af stað frá Árbæjarkirkju - 13:00 Skátafélagið Árbúar og Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts koma marserandi inn á safnið - 13:00-15:00 Álfasmiðja í Lækjargötu - 14:00-14:30 Dagrún Ósk þjóðfræðingur segir frá sögu Sumardagsins fyrsta við Álfhólinn - 14:00-15:00 Ertu að læra íslensku? – Leiðsögn á auðskilinni íslensku - 15:00 Kvöldvaka við Álfhólinn - Skátafélagið Árbúar - 13:00-16:00 Veitingasala, popp og kandífloss í litla Laufás– Skátafélagið Árbúar - 13:00-16:00 Þrautaleikur á safnsvæðinu – Skátafélagið Árbúar - 13:00-16:00 Kynning á skátastarfi – Skátafélagið Árbúar - 13:00-16:00 Saumum saman Ísland – Sýning á samfélagslegu bútasaumsteppi í Kornhúsinu - 13:00-16:00 Hvernig byggir maður alvöru torfbæ? – Sýning á torfbæjum 3. bekkjar Ártúnsskóla í Líkn - 13:00-16:00 Opið á kaffihúsinu í Dillonshúsi - 13:00-16:00 Handverksfólk í hinum ýmsu húsum Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.