Sumarsólstöðuganga

Farin verður sumarsólstöðuganga í Viðey laugardagskvöldið 21. júní en á sólstöðum er sólargangur lengstur hér á norðurhveli jarðar og hádegissólin hættir að hækka dag frá degi. Hún fer að lækka og dagurinn styttist. Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögusafns leiðir gönguna. Heiðursgestur göngunnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytur þátttakendum ávarp. Þá mun upphafsmaður göngunnar Þór Jakobsson veðurfræðingur segja nokkur orð.
Farin verður skemmtileg gönguleið um eyjuna og sögur sagðar af staðnum. Gönguleiðin er hæfileg, gengið er á mjúku undirlagi en mælt er með góðum skóm og skjólgóðum jakka. Gestir eru hvattir til að taka með sér nesti og heitan drykk til að njóta á meðan hlýtt er á erindi Ingibjargar áður en gengið verður til baka að ferjunni. Sumarsólstöðuganga í Reykjavík og nágrenni hefur nú verið stunduð árlega síðan 1985. Gangan hefur verið kölluð "meðmælaganga með lífinu og menningunni" og gestir eru hvattir til að spjalla saman og njóta samvista. Siglt verður frá Skarfabakka í Viðey kl. 20:00 og til baka ekki seinna en kl. 23:00. Ókeypis er á viðburðinn, en greiða þarf í ferjuna. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram í ferjuna. https://elding.is/is/node/2373 Verið öll velkomin!