Sýning­ar­spjall f. ungmenni á einhverfurófi

Sýningarspjall f. ungmenni á einhverfurófi

Skynsegin ungmenni eru boðin sérstaklega velkomin í spjall Evu Ágústu, ljósmyndarans á bak við sýninguna HINSEGIN - EINHVERF, sunnudaginn 24. október kl. 14. Aðgangur er ókeypis.

Viðburðurinn er skynseginvænn og gerðar verða ráðstafanir til að lágmarka áreiti. Safnið er þó opið almennum gestum svo það má gera ráð fyrir smávægilegum umgangi. Finna má upplýsingar um aðgengi á Ljósmyndasafninu á vef Borgarsögusafns efst þar sem stendur aðgengi. Sýningin Hinsegin - einhverf er safn ljósmynda af einstaklingum sem eru hinsegin og staðsetja sig á einhverfurófi, með eða án einhverfugreiningar. Eva Ágústa ljósmyndari, sem sjálf er trans og á einhverfurófi, hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að segja sögur af fólki út frá sínum hugmyndum um það. Frá unga aldri hefur hún fylgst með því hvernig óeinhverfir haga sér í samfélaginu og út frá því hefur hún reynt að breyta hegðun sinni til þess að passa betur inn í samfélagið. Einhverfir verða gjarnan utanveltu vegna skynjunar sinnar á umhverfinu. Í dag notar Eva þessa óhefðbundnu skynjun sem styrkleika í myndsköpun sinni. Sýningin er tilraun Evu til að auka sýnileika þessara tveggja hópa sem eiga til að týnast í samfélaginu og verða ósýnilegir. Eva vann verkefnið þannig að hún kynnti sér viðfangsefnin mjög persónulega og út frá því myndaði hún fólkið í því umhverfi þar sem því líður best. Eva blandar saman náttúrulegri birtu og aukalýsingu til að skapa þá persónu sem hún sér og sem einstaklingarnir samþykkja. Eva lærði ljósmyndun í Tækniskólanum í Reykjavík árið 2009 og lauk sveinsprófi haustið 2011. Hún tók sér pásu frá ljósmyndun í nokkur ár en hefur að undanförnu fundið hillu sína aftur og hefur meðal annars fengist við nokkur verkefni sem snúa að því að segja sögur af fólki. Sýningin er styrkt af Einhverfusamtökunum.