Sýning­ar­spjall I Hjarta­þræðir

Sýningarspjall I Hjartaþræðir

Verið velkomin á sýningarspjall með Þórdísi Erlu Ágústsdóttur um sýninguna Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, sunnudaginn 31. maí kl. 14.00 Ókeypis er á spjallið og öll velkomin! Talað mál íslenska. Í ljósmyndum sínum leitast Þórdís Erla við að fanga það óáþreifanlega í daglegu lífi fólks inn á heimilum þess og á öðrum stöðum sem eru því mikilvægir. Hún beinir sjónum að tengslum og tilfinningum á milli einstaklinga. Náttúran er órjúfanlegur hluti af umhverfinu og hefur mótandi áhrif á tilfinningalíf og gjörðir. Til að sýna hversu samofið þetta tvennt er stillir Þórdís Erla fram kraftmiklum stemningum af íslenskri náttúru innan um myndirnar af fólkinu. Þórdís Erla hefur myndað fólkið, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Hún velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Í gegnum þau mannlegu samskipti sem Þórdís Erla fangar og gerir sýnileg, beinir hún sjónum að kjarna mennskunnar — þörfinni fyrir nánd og raunveruleg tengsl í samfélagi þar sem rafræn samskipti hafa aukið einmanaleika og einangrun. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur sumu fylgt eftir yfir löng tímabil á meðan annað birtist aðeins í einum söguþræði. Sýningin er persónuleg og hverfist um íslenskan veruleika þó umfjöllunarefnið sé ekki einungis bundið við hann.

Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.