Sýningarspjall I MYNDIR ÁRSINS 2025

Verið velkomin á sýningarspjall um Myndir ársins 2025 sunnudaginn 12. apríl kl. 14:00. Golli (Kjartan Þorbjörnsson), formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, gengur með gestum um sýninguna og segir frá fréttamyndum ársins 2025. Frítt inn! 📷Mynd ársins 2024. Ljósmyndari: Golli.
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.