Sýning­ar­spjall með sýning­ar­stýrum - Ólafur K. Magnús­son: Á vett­vangi

Sýningarspjall með sýningarstýrum - Ólafur K. Magnússon: Á vettvangi

Sunnudaginn 15. nóvember kl. 14, munu þær Íris Gyða Guðbjargardóttir og Hlín Gylfadóttir, sýningarstýrur sýningarinnar Ólafur K. Magnússon: Á vettvangi leiða gesti um sýninguna. Ókeypis inn og öll velkomin! Talað mál íslenska.

Ólafur K. Magnússon (1926–1997) var fyrsti fastráðni ljósmyndari dagblaðs á Íslandi þegar hann hóf störf á Morgunblaðinu árið 1947. Hann lærði ljósmyndun í New York og kvikmyndagerð í Los Angeles. Þaðan bar hann með sér strauma sem höfðu mótandi áhrif á næstu kynslóðir blaðaljósmyndara. Þegar flett er í gegnum filmusafn Ólafs, sem telur tæplega 200.000 ljósmyndir, uppljómast hversu næmt auga hann hafði fyrir fögrum og kómískum atvikum í hversdeginum. Á milli æsilegra fréttaskota af eldsvoðum og mótmælum, birtast innileg augnablik sem hann festi á filmu í nærumhverfi sínu. Ljósmyndir Ólafs eru einstök heimild um daglegt líf, atburði og andrúmsloft og hafa margar þeirra aldrei komið fyrir augu almennings áður. Sögusviðið er miðbær Reykjavíkur en skrifstofur Morgunblaðsins voru mitt í hringiðu mannlífs og menningar megnið af starfsferli hans, sem spannaði hálfa öld. Sýningin nær yfir námsárin í Bandaríkjunum og tæp þrjátíu ár starfsferils Ólafs, 1947-1975. Nánari upplýsingar um sýninguna: https://borgarsogusafn.is/syningar/a-vettvangi-olafur-k-magnusson-bladaljosmyndari Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.