Þjóð­há­tíð­argleði Árbæj­arsafns

Þjóðhátíðargleði Árbæjarsafns

Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem þjóðbúningar, þjóðdansar, fjallkonan, fornbílar, harmonikkuleikur, veitingasala og gömlu góðu sleikjóarnir koma við sögu. Ókeypis aðgangur fyrir þá sem mæta í þjóðbúningi, öryrkja, börn og menningarkortshafa.

Að vanda eru þjóðbúningurinn og þjóðdansar í öndvegi á þessum hátíðardegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúningi. Fjallkonu Árbæjarsafns verður skautað í safnhúsinu Lækjargötu kl. 14 en eftir það hefst kennsla í þjóðdönsum undir leiðsögn Atla Freys Hjaltasonar í Þjóðdansafélaginu. Nokkrir félagar úr Fornbílaklúbbnum mæta með drossíur sínar sem verða til sýnis á víð og dreif um safnsvæðið. Skátar verða með fjáröflun á safntorginu og það verður veitingasala í Dillonshúsi. Litríku og góðu sleikjóarnir verða á sínum stað í Krambúðinni. Harmóníkuleikur verður við torgið, Árbæ og við Dillonshús. Verið velkomin!