Þjóðhátíðargleði Árbæjarsafns

Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem þjóðbúningar, þjóðdansar, fjallkonan, fornbílar, harmonikkuleikur, veitingasala og gömlu góðu sleikjóarnir koma við sögu. Ókeypis aðgangur fyrir þá sem mæta í þjóðbúningi, öryrkja, börn og menningarkortshafa.
Að vanda eru þjóðbúningurinn og þjóðdansar í öndvegi á þessum hátíðardegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúningi. Fjallkonu Árbæjarsafns verður svo skautað í safnhúsinu Lækjargötu kl. 14 en eftir það hefst þjóðdansasýning Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Nokkrir félagar úr Fornbílaklúbbnum mæta með drossíur sínar sem verða til sýnis á víð og dreif um safnsvæðið. Dillonshús verður opið að vanda með með veitingasölu. Litríku og góðu sleikjóarnir verða á sínum stað í Krambúðinni. Harmnikkuleikur verður við torgið, Árbæ og við Dillonshús. Verið velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.