Þjóð­sögur og plöntur með Björk Bjarka­dóttur

Þjóðsögur og plöntur með Björk Bjarkadóttur

Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu fyrir alla fjölskylduna með Björk Bjarnadóttur umhverfis- og þjóðfræðingi.

Spáð verður í jurtirnar, nöfn þeirra, athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra ásamt því sem fylgst verður með fuglalífi á eyjunni. Horft verður á hafið og sagðar þjóðsögur af marbendli, margýgjum, hafmönnum, hafströmbum og öðrum verum sem búa í hafinu. Spáð verður í uppruna huldufólks og sögð saga sem tengist Magnúsi Stephensen konferensráð og huldukonu einni. Fjölbreytt saga eyjunnar mun fléttast inn í gönguferðina. Ef fólk vill getur verið gaman að koma með jurta- eða fuglabækur og stækkunargler ef þið eigið. Ferjan siglir frá Skarfabakka laugardaginn 16. ágúst kl. 13:15 og til baka kl. 15:30 en þið getið dvalið lengur ef þið viljið. Við hvetjum ykkur til að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar. Sjá link hér: https://elding.is/videy-ferry-skarfabakki