Þjóðsögur og plöntur með Björk Bjarnadóttur
![Þjóðsögur og plöntur með Björk Bjarnadóttur](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fhvirfill.reykjavik.is%2Fmedia%2Fimages%2FVidburdamynd_Bjo.5363ad98.fill-1920x980-c100.format-jpeg.jpg&w=3840&q=75)
Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu fyrir alla fjölskylduna með Björk Bjarnadóttur umhverfis- og þjóðfræðingi.
Spáð verður í jurtirnar , nöfn þeirra , athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra ásamt því sem fylgst verður með fuglalífi á eyjunni. Horft verður á hafið og sagðar þjóðsögur af marbendli, margýgjum, hafmönnum, hafströmbum og öðrum verum sem búa í hafinu . Spáð verður í uppruna huldufólks og sögð saga sem tengist Magnúsi Stephensen konferensráð og huldukonu einni. Fjölbreytt saga eyjunnar mun fléttast inn í gönguferðina. Ef fólk vill getur verið gaman að koma með jurta- eða fuglabækur og stækkunargler ef þið eigið. Ferjan siglir frá Skarfabakka laugardaginn 17. ágúst kl. 13:15 og til baka kl. 15:30 en þið getið dvalið lengur ef þið viljið. Við hvetjum ykkur til að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar. Sjá link hér í viðburðinum.