Þræðir - Dansinn höfum við dansk­inum frá: Birt­ing­ar­mynd þjóð­dansa á Íslandi

Þræðir - Dansinn höfum við danskinum frá: Birtingarmynd þjóðdansa á Íslandi

Þann 24. nóvember kl. 16:00-17:00 verður flutt sjöunda erindið í fyrirlestraröðinni Þræðir á Landnámssýningunni Aðalstræti. Ókeypis inn og öll velkomin! Erindið fer fram á íslensku.

Í þetta sinn mun Atli Freyr Hjaltason þjóðfræðingur kynna rannsókn sína á þjóðdönsum á Íslandi, hvernig þeir birtast í fræðilegri umræðu, lifandi hefð og í sögulegu samhengi bæði í íslensku- og norrænu samhengi. Að fyrirlestri loknum verða ólíkir þjóðdansar stignir undir leiðsögn Atla Freys. Viðburðurinn er haldinn í góðu samstarfi Borgarsögusafns og Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Aðgengi fyrir hreyfihamlað fólk í Aðalstræti er gott. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).