Þræðir - Matur, sjálfs­mynd og að tilheyra

Þræðir - Matur, sjálfsmynd og að tilheyra

Þann 31. mars kl. 16:00-17:00 verður flutt sjötta erindið í fyrirlestraröðinni Þræðir á Landnámssýningunni Aðalstræti. Ókeypis inn og öll velkomin! Erindið fer fram á ensku.

Í þetta sinn mun Martyna Ylfa Suszko þjóðfræðingur kynna lokaverkefni sitt, þjóðfræðilega rannsókn á matargerðarvenjum pólskra innflytjenda á Íslandi - Food, Identity, and Belonging: An Ethnographic Study of Polish Migrants’ Culinary Practices in Iceland. Matyna mun fjalla um hvernig matargerðarvenjur geta mótað þjóðerniskennd og tilfinningu fyrir því að tilheyra meðal pólskra innflytjenda á Íslandi. Hún greinir, á grundvelli þjóðfræðilegra rannsókna, hvernig hefðbundinn matur, eldamennska og sameiginlegar máltíðir hjálpa innflytjendum að viðhalda tengslum sínum við heimalandið, á sama tíma og þeir aðlagast veruleika þess að búa í nýju félagslegu umhverfi. Rannsóknin sýnir hvernig matur getur orðið brú á milli minninga, sjálfsmyndar og daglegrar aðlögunar. Viðburðurinn er haldinn í góðu samstarfi Borgarsögusafns og Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Aðgengi fyrir hreyfihamlað fólk í Aðalstræti er gott. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).