Táknmálsleiðsögn í Viðey

Í tilefni þess að það er loksins komið sumar býður Borgarsögusafn upp á leiðsögn á táknmáli í Viðey föstudaginn 19. júní kl. 16:15.
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, táknmálsleiðsögumaður, leiðir gesti um eyjuna en Viðey er sannkölluð náttúruperla í borgarlandinu, með djúpar sögulegar rætur og menningarlegt vægi. Þetta gerir eyjuna að einstökum og heillandi áfangastað til ánægju, útivistar og í ævintýraleit. Siglt verður frá Skarfabakka kl. 16:15 þannig það er gott að mæta tímanlega á bryggjuna þar sem Sigurlín tekur á móti ykkur. Gangan tekur um klukkustund og hægt er að taka ferjuna til baka 17:30 eða síðustu ferju 18:30. Öll þau sem tala táknmál eru boðin hjartanlega velkomin. Leiðsögnin er ókeypis en greiða þarf í ferjuna. Best er að kaupa miða fyrirfram í ferjuna á heimasíðu Eldingar: https://elding.is/is/videyjarferjan-fra-skarfabakka Fyrir þau sem versla miða á netinu er afsláttarkóði: TAKNMAL Viðey er hluti af Borgarsögusafni Reykjavíkur - Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Aðgengi: Til að komast í Viðey er tekin ferja sem siglir frá Skarfabakka í Sundahöfn. Gengið er í ferjuna um landgang sem er misbrattur eftir sjávarföllum. Fyrir vikið er aðgengi fyrir hreyfihamlaða með miklum takmörkunum. Viðey er friðlýst svæði og þar eru sögufrægar byggingar, útivistarsvæði, fjörur og útilistaverk. Heimsókn í eyna felur í sér töluverða útiveru. Gott er að hafa í huga að hvassara getur verið í eyjunni en á landi. https://borgarsogusafn.is/adgengi