Tákn­máls­leið­sögn - Ólafur K. Magnús­son: Á vett­vangi

Táknmálsleiðsögn - Ólafur K. Magnússon: Á vettvangi

Borgarsögusafn býður upp á táknmálsleiðsögn um sýninguna Ólafur K. Magnússon: Á vettvangi þann 29. nóvember kl. 14.00. Leiðsögnin er ókeypis og öll sem tala táknmál eru hjartanlega velkomin.

Þegar flett er í gegnum filmusafns Ólafs, sem telur tæplega 200.000 ljósmyndir, uppljómast hversu næmt auga hann hafði fyrir fögrum og kómískum atvikum í hversdeginum. Á milli æsilegra fréttaskota af eldsvoðum og mótmælum, birtast innileg augnablik sem hann festi á filmu í nærumhverfi sínu. Ljósmyndir Ólafs eru einstök heimild um daglegt líf, atburði og andrúmsloft og hafa margar þeirra aldrei komið fyrir augu almennings áður. Sögusviðið er miðbær Reykjavíkur en skrifstofur Morgunblaðsins voru mitt í hringiðu mannlífs og menningar megnið af starfsferli hans, sem spannaði hálfa öld. Sýningin nær yfir námsárin í Bandaríkjunum og tæp þrjátíu ára starfsferils Ólafs, 1947-1975. Aðgengi: Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott. Hægt er að stöðva bíl við inngang safnsins til að hleypa farþegum út og inn. Almenn bílastæði eru á bak við húsið og í bílakjöllurum á Vesturgötu 7 og við Hafnartorg. Það þarf að borga fyrir stæði á öllum þessum stöðum. Tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru norðan við Hafnarhús (hafnar megin). Stoppistöðvar eru á Lækjargötu og Mýrargötu (5 – 10 mínútna gangur).