Tákn­máls­leið­sögn um varð­skipið Óðinn

Táknmálsleiðsögn um varðskipið Óðinn

Borgarsögusafn býður upp á táknmálsleiðsögn um varðskipið Óðinn þann 24. október kl. 13.30. Varðskipið Óðinn er hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík og um leið ein helsta sýning safnsins. Skipið kom til safnsins árið 2008 og er varðveitt í því ástandi sem það kom. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, táknmálsleiðsögumaður, leiðir gesti um skipið, segir frá sögu þess, lífinu um borð og því hlutverki sem að það gegndi hjá Landhelgisgæslu Íslands. Leiðsögnin tekur tæplega klukkustund. Öryggi um borð. Til þess að tryggja öryggi um borð skal hafa í huga: Lágt getur verið til lofts og hvassar brúnir og horn sem hægt er að reka sig í. Stigar eru brattir. Skipið hentar ekki fólki sem fær innlokunarkennd eða hefur skerta hreyfigetu. Börn yngri en 12 ára skulu ætíð vera í fylgd með fullorðnum. Börn eru á ábyrgð forráðamanna. Öll sem tala táknmál eru hjartanlega velkomin. ⚓

Aðgengi: Í varðskipinu Óðni eru brattir stigar, háir þröskuldar og þröngir gangar. Þar er því ekki aðgengi fyrir hjólastóla né þá sem eiga erfitt með gang. Fólki með innilokunarkennd er ekki ráðlagt að fara um borð í skipið.